![]() |
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
![]() Reglur um úthlutun úr einstaklingsdeildSveitamenntar SGS og Launanefndar sveitarfélaga *
1. gr. Almennt um skilyrði fyrir umsókn:
Styrkur til hvers félagsmanns skal samanlagt aldrei vera hærri en kr. 60.000 á hverju almanaksári nema þegar um er að ræða styrk vegna aukinna ökuréttinda þar sem veittur er sérstakur styrkur. Hlutfall styrks af heildarkostnaði fer að öllu jöfnu eftir samhengi starfs viðkomandi og þess náms sem sótt er um styrk til ásamt því að taka tillit til aðkomu þess sveitarfélags sem félagsmaður starfar hjá. Við það mat skal hafa eftirfarandi til grundvallar:
2. gr. Styrkir til félagsmanna á sjúkradagpeningum Félagsmenn sem taka sjúkradagpeninga skulu halda réttindum til styrks í allt að 6 mánuði eins og réttindi voru við starfslok. 3. gr. Styrkir vegna íslenskunáms Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um allt að 90% endur-greiðslu vegna 150 stunda íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild.
4. gr. Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar- og ritstuðning Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar- og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 90% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins. 5. gr. Ákvörðun um styrk ofl. Viðkomandi stéttarfélag tekur ákvörðun um það hvort orðið skuli við umsókn um styrk, hversu hár hann skuli vera og afgreiðir hann í samræmi við reglur þessar. 6. gr. Endurskoðun Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrk, en styrkumsókn hans er hafnað af viðkomandi stéttarfélagi, þá getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Sveitamenntar SGS til endurskoðunar. Það sama gildir ef félagsmaður telur sig eiga rétt á hærri styrk en hann fékk samþykktan hjá viðkomandi stéttarfélagi. * Reglur þessar voru samþykktar á fundi sjóðstjórnar þann 12. janúar 2007. Þær geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni. Breyting vegna 4. gr. reglna samþykkt 7. maí 2007 Breyting vegna hækkunar á styrkjum til aukinna ökuréttinda samþykkt 11. janúar 2008. Hækkunin tók gildi f.o.m. 1. janúar 2008. Breyting vegna 3. gr. tók gildi 1. janúar 2009 en þá var samþykkt að greiða út styrki um leið og viðkomandi félagsmaður legði inn umsókn ásamt reikningi/kvittun vegna náms/námskeiða. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
Sveitamennt SGS og LN - Skeifan 8, 2. hæð - 108 Reykjavík - 599 1450 - sveitamennt@sveitamennt.is |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||






